Framkvæmdastjórn TM

Fyrirsagnalisti

Sigurður Viðarsson

forstjóri

Sigurður hóf störf hjá TM í október 2007. Hann starfaði áður hjá Okkar líftryggingum hf., m.a. sem forstöðumaður fjármála- og vátryggingasviðs og staðgengill forstjóra. Sigurður er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Garðar Þ. Guðgeirsson

framkvæmdastjóri áhættuverðlagningar og viðskiptaþróunar

Garðar hóf störf hjá TM í júní 2008. Hann starfaði áður hjá Íslensku verkfræðistofunni og sem ráðgjafi hjá McKinsey & Company í Kaupmannahöfn. Garðar er með B.Sc.-gráðu í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands, M.Sc.-gráðu í hugbúnaðarverkfræði frá University of York, og MBA frá IMD.

Hjálmar Sigurþórsson

framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar og erlendra viðskipta

Hjálmar hóf störf hjá TM í september 1988, fyrst sem starfsmaður í tjónadeild, síðan deildarstjóri tjónadeildar frá 1994 þar til hann varð framkvæmdastjóri hennar árið 2005. Árið 2008 tók Hjálmar við starfi framkvæmdastjóra fyrirtækjaþjónustu TM. Hjálmar er með MBA-gráðu frá Háskólanum Reykjavík.

Kjartan Vilhjálmsson

framkvæmdastjóri tjónaþjónustu

Kjartan hóf störf hjá TM í janúar 2005 sem lögfræðingur í tjónaþjónustu en hann útskrifaðist sem cand. jur. frá lagadeild Háskóla Íslands sama ár. Kjartan öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi 2006 og varð deildarstjóri líkamstjóna 2007. Kjartan hefur verið framkvæmdastjóri tjónaþjónustu frá árinu 2008.

Óskar B. Hauksson

framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs

Óskar hóf störf hjá TM í ágúst 2006 sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. Óskar er verkfræðingur og með B.Sc.-gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og útskrifaðist með MBA-gráðu frá Oxford, Said Business School, árið 2005. Óskar hefur verið framkvæmdastjóri fjármála- og rekstararsviðs TM frá árinu 2008.

Ragnheiður Dögg Agnarsdóttir

framkvæmdastjóri einstaklingsráðgjafar og markaðsmála

Ragnheiður hóf störf hjá TM í apríl 2006 sem forstöðumaður einstaklingsþjónustu. Hún er með BA-próf í sálfræði frá Háskóla Íslands og útskrifaðist með MA-gráðu í mannauðsstjórnun frá sama skóla árið 2009. Ragnheiður hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra hjá TM frá árinu 2007. Fyrst sem framkvæmdastjóri vátrygginga- og fjármálaþjónustu en frá 2015 sem framkvæmdastjóri einstaklingsráðgjafar og markaðsmála.